SVÆL4AL04 - Svæðalýsingar I

Í áfanganum eru nemendur undirbúnir undir að leiðsegja í rútuferðum. Tekið er fyrir höfuðborgarsvæðið og vinsælar ferðaleiðir í nágrenni þess. Nemendur öðlast þekkingu á þessum svæðum og læra að afla heimilda. Fjallað er um það sem er áhugavert fyrir ferðamenn að heyra um, sjá eða skoða s.s. því sem tengist landi og þjóð, menningu, sögu, atvinnulífi, flóru, fánu og þjóðsögum. Áréttað er mikilvægi þess að aðlaga leiðsögn að hverjum hóp. Einnig er farið yfir mótttöku ferðamanna og fyrstu samskipti við þá hvort heldur er við komu með flugi eða skipi. Fjallað er um hvernig ferðagögn frá ferðaskrifstofu eru lesin og hvernig ferðaáætlun er fylgt. Einnig hvernig gott er að útfæra ferðir og skipuleggja stopp m.t.t. aðstæðna hverju sinni og samsetningu hópsins.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hvernig afla skal heimilda.
  • Mikilvægi þess að lesa hóp og aðlaga leiðsögn að hópnum.
  • Höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess, ásamt Reykjanesi og Gullhring.
  • Útivistarsvæði á höfuðborgarsvæðinu og vinsælum áningarstöðum.
  • Helstu söfnum og afþreyingu sem er í boði á svæðinu.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Velja viðeigandi og fjölbreytt umfjöllunarefni sem falla að viðkomandi hóp.
  • Skipuleggja og útfæra ferðir á sem bestan hátt fyrir hópinn út frá dagskrá ferðaþjónustuaðilans.
  • Setja saman fræðandi og upplýsandi pistla.
  • Þekkja rétta aðkomu og áætla tímaramma á helstu ferðamannastöðum.
  • Taka tillit til aðstæðna, tímasetninga, sjálfbærni, náttúruverndar og hafa öryggi hóps í fyrirrúmi.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Setja mismunandi þætti svæðisins í samhengi s.s. sögu, atvinnuhætti, jarðfræði, gróður og dýralíf svo úr verði lifandi og eftirminnileg frásögn.
  • Meta hugsanlega áhættu á viðkomustöðum og gera farþegum grein fyrir hættum sem kunna að vera fyrir hendi til að tryggja öryggi þeirra.
  • Gefa skýr fyrirmæli varðandi tímasetningar, hvað er í boði að gera á viðkomustaðnum og hvernig ber að haga sér.

Undanfari: ATVL4AV02, FEÞJ3FE01, BOLI4BL05, DÝRA4DL03, GRÓN4GN03, ÍSAM4ÍS02, JARÐ3JÍ04, LEIL3LE03, SAGA4SG02, TMNO4FÞ05.

Námsmat: Sjá kennsluáætlun.