Í áfanganum er farið hringinn í kringum landið í kennslustofunni. Ferðalagið hefst á Vesturlandi og endar á Suðurlandi.
Fjallað er um helstu viðkomustaði ferðamanna og áhugaverð sérkenni hvers svæðis dregin fram. Sérstök áhersla er lögð á menningu, sögu, samfélag, atvinnulíf, flóru og fánu á hverju svæði auk tengsla við Íslendingasögur, þjóðsögur og nútímabókmenntir. Athygli er beint að þjóðgörðum, friðlýstum svæðum, söfnum og afþreyingu í boði. Nemendum er leiðbeint um aðkomu að viðkomustöðum og hvað er í boði á hverjum stað fyrir sig. Einnig um mikilvægi þess að lesa ferðagögn frá ferðaskrifstofu og fylgja ferðaáætlun sem og hvernig gott er að útfæra ferðir og skipuleggja stopp m.t.t. ólíkra hópa. Nemendum er leiðbeint hvernig ferðast er um viðkomandi svæði með hliðsjón af aðstæðum, tímasetningum, sjálfbærni, náttúruvernd og öryggi hóps.
Svæðalýsingar tengjast áföngunum Tungumálanotkun II og Vettvangsnám hringferð á þann hátt að um sameiginlegar vettvangsferðir er að ræða.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Aðkomu að ólíkum ferðamannastöðum með hliðsjón af náttúruvernd og sjálfbærni, skipulagi og tímasetningu á hverju svæði.
- Umgangast dýr af nærgætni.
- Áhugaverðum staðreyndum um helstu ferðamannastaði.
- Sögu, atvinnuháttum, jarðfræði, gróður og dýralíf á hverju svæði.
- Hlunnindabúskap á Íslandi.
- Þjóðgörðum og friðlýstum svæðum.
- Hálendi, óbyggðum, virkjunum og orkunýtingu almennt.
- Náttúruvernd og sjálfbærni á hverju svæði.
- Atburðum og sögupersónum úr Íslendingasögum/ fornsögum, þjóðsögum og nútíma bókmenntum sem tengjast staðnum/svæðinu.
- Listamönnum og söfnum á hverju svæði.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Túlka náttúruna fyrir ferðamönnum með því að hlusta, horfa, lykta og snerta með náttúruupplifun í huga.
- Leiðbeina um aðkomu og sérkennum algengra viðkomustaða ferðamanna.
- Segja frá Þjóðgörðum og mikilvægi þeirra á Íslandi.
- Skipuleggja og útfæra ferðir á sem bestan hátt fyrir hópin út frá dagskrá ferðaþjónustuaðilans.
- Átta sig á og leggja mat á áhugaverða þætti í öllum landshlutum landsins.
- Þekkja rétta aðkomu og áætla tímaramma á helstu ferðamannastöðum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Setja mismunandi þætti hvers landsvæðis í samhengi s.s. sögu, samfélag, atvinnuhætti, jarðfræði, gróður og dýralíf svo úr verði lifandi og eftirminnileg frásögn.
- Meta hugsanlega áhættu á viðkomustöðum og gera farþegum grein fyrir hættum sem kunna að vera fyrir heldi til að tryggja öryggi þeirra.
Undanfari: Kjarni leiðsögunáms ÍSSÖ4AL02, JARÐ4AL04, LEIL4AL02, NÁTT3AL01.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.