SVÆL4GÖ04 - Svæðalýsingar II Gönguleiðsögn
Í áfanganum er fjallað um helstu gönguleiðir og göngumöguleika á Íslandi. Lögð er áhersla á náttúrutúlkun, jarðfræði, gróður og dýralíf og helstu þætti í sögu og þjóðfræði er tengjast gönguleiðinni. Nemendum er leiðbeint um hvernig best er að koma að göngusvæðum og ferðast um svæðin með hliðsjón af skipulagi, náttúruvernd og sjálfbærni, tímasetningum og erfiðleikastigi. Fjallað er um göngusvæði í þjóðgörðum í byggð og óbyggðum m.t.t. náttúruverndar og sjálfbærni. Einnig fá nemendur þjálfun í að undirbúa og skipuleggja gönguferðir fyrir mismunandi hópa.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Aðkomu að helstu gönguleiðum með hliðsjón af skipulagi, tímasetningu, náttúruvernd og sjálfbærni hvers svæðis.
- Helstu göngusvæðum á Íslandi og mikilvægi sjálfbærni þeirra.
- Áhugaverðum stöðum á gönguleiðum.
- Jarðfræði, gróðri og dýralífi svæðisins.
- Helstu þáttum í sögu og þjóðfræði er tengjast gönguleiðinni.
- Sögu og tilurð þjóðgarða og friðlýstra svæða á Íslandi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Túlka náttúruna fyrir ferðamönnum með því að hlusta, horfa, lykta og snerta með náttúruupplifun í huga.
- Gera grein fyrir aðkomu og einkennum helstu gönguleiða á Íslandi.
- Segja frá þjóðgörðum og mikilvægi þeirra á Íslandi.
- Skipuleggja og kortleggja ferðir í óbyggðum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Skipuleggja, undirbúa og framkvæma nokkurra daga gönguferð í óbyggðum.
- Leiðsegja ferðamönnum um helstu göngusvæði og þjóðgarða. Geta sett í samhengi menningu, sögu, atvinnulíf, flóru og fánu ásamt atburðum úr fornsögum, þjóðsögum og ferðasögum á umræddum göngusvæðum.
Undanfari: Kjarni leiðsögunáms, FYHJ3FH01, HÓST3GÖ03, FERÖ4GÖ04, NÁTG4GÖ04.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.