TMN04GÖ02 - Tungumálanotkun II Gönguleiðsögn

Í áfanganum er lögð áhersla á þjálfun í kjörmáli á vettvangi. Farið er í æfingaferðir um helstu ferðamannaleiðir í nágrenni Reykjavíkur s.s. Reykjanes, Gullfoss, Geysi og Þingvelli ásamt Reykjavík. Nemendur vinna raunhæf verkefni þar sem þeir æfa sig í að leiðsegja munnlega, leiðsagnartungumál þarf að uppfylla kröfur C1 skv. evrópska tungumálastaðlinum. Leiðbeint er um efnisval m.t.t. ólíkra samsetninga ferðamannahópa og framsetningu á efninu þannig að frásögn sé samfelld og hæfi bæði stað og stund. Nemendur eru þjálfaðir í öflun upplýsinga, notkun hljóðnema, flæði í frásögn og áhersla er lögð á réttar tímasetningar í frásögn.
Tungumálanotkun 2 tengist áfanganum Svæðalýsingar 1 á þann hátt að um sameiginlegar vettvangsferðir er að ræða og nemendur útbúa pistla um algenga viðkomustaði ferðamanna.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Því sem er frásagnarvert á helstu viðkomustöðum ferðamanna á algengum dagsferðum frá Reykjavík.
  • Mikilvægi góðs undirbúnings og skipulags.
  • Mikilvægi góðrar umgengni við náttúru og menningarminjar.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: 

  • Leiðsegja um Reykjavík og helstu dagleiðir í nágrenni Reykjavíkur.
  • Nýta fjölbreyttan og viðeigandi orðaforða í frásögn.
  • Skipuleggja uppbyggingu og markvissa framsetningu í áhugaverðri og heildstæðri frásögn.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Undirbúa og útfæra leiðsögn, byggða á ferðaætlun ferðaskrifstofu, um Reykjavík og algengar dagleiðir frá Reykjavík þannig að úr verði heildstæð skemmti- og fræðsluferð sem skilji eftir sig fjölbreytta þekkingu á viðkomandi svæðum.
  • Tryggja öryggi ferðamanna eins og kostur er.
  • Nota fjölbreyttan og viðeigandi orðaforða og hugtök í leiðsögn.
  • Leiðsegja að uppfylltum kröfum C1 (skv. evrópska tungumálastaðlinum).

Undanfari: Kjarni leiðsögunáms, FYHJ3FH01, JARÐ4AL04, LEIL4AL02, NÁTT3AL01, SVÆL4AL04.

Námsmat: Sjá kennsluáætlun.