Í áfanganum fá nemendur þjálfun í að segja frá á sínu kjörmáli. Ekki er um beina tungumálakennslu að ræða en nemendum er leiðbeint um orðanotkun, málfræði, efnistök og framburð. Nemendur eru þjálfaðir í málhópum eftir kjörmáli og semja pistla um efni kjarnaáfanga og flytja í málstofu. Sérstök áhersla er lögð á sérorðaforða svo nemendur geti sagt frá efni kjarnaáfanga sem eru: Atvinnuvegir, Bókmenntir og listir, Dýralíf, Gróður og náttúruvernd, Íslandssaga, Íslenska samfélagið og Jarðfræði. Æfð er framsetning og frásagnartækni í viðkomandi tungumáli með hliðsjón af námskeiðinu Leiðsögutækni og samskipti. Nemendur fá þjálfun í að setja frásögn í samhengi þannig að ferðamaður geti metið staðreyndir. Lögð er áhersla á munnlega færni með raunhæfum verkefnum sem fjalla um mál sem leiðsögumenn þurfa að útskýra í starfi. Til að standast áfangann þurfa nemendur að uppfylla kröfur C1 (skv. evrópska tungumálarammanum) í flutningi pistla á sínu kjörmáli.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Undanfari: ATVL4AV02, FEÞJ3FE01, BOLI4BL05, DÝRA4DL03, GRÓN4GN03, ÍSAM4ÍS02, JARÐ3JÍ04, LEIL3LE03, SAGA4SG02.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.