VEFM3GÖ01 - Fjallamennska I - Vetrarferðamennska
Farið er yfir vetrarferðamennsku, sérstaklega m.t.t. öryggismála s.s. snjófóða. Fjallað er um nauðsynlegan búnað, leiðaval og snjóflóðahættu. Leiðbeint er um göngu í snjó og notkun ísaxar og ísaxarbremsa. Einnig göngu á mannbroddum og snjó- og ístryggingar. Kenndir eru helstu hnútar, meðferð línu og einfalt sig. Einnig er fjallað um gerð neyðarskýla og nemendur þjálfaðir í öruggu leiðavali. Áfanginn er að stærstum hluta verklegur úti í náttúrunni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Helstu undirstöðuatriðum í fjallamennsku til að hann geti bjargað sér í fjalllendi við íslenskar vetraraðstæður.
- Helstu tækjum og búnaði við fjallamennsku að vetrarlagi, s.s. að nota ísexi, mannbrodda og klifurbúnað í brattlendi.
- Helstu tryggingaraðferðum í snjó.
- Grunnaðferðum við mat á snjóflóðahættu.
- Gerð neyðarskýla að vetrarlagi.
- Mikilvægi búnaðar s.s. skó og mannbrodda, sigstól, hjálm, ísöxi, snjóflóðaýli, snjóflóðastöng og skóflu og hvernig búnaður er notaður.
- Eigin styrkleika og takmörkunum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Bjarga sér í fjalllendi við íslenskar vetraraðstæður.
- Beita helstu tækjum og búnaði við fjallamennsku að vetrarlagi.
- Meta snjóflóðahættu.
- Útbúa neyðarskýli að vetrarlag.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Fara með ferðamenn í gönguferðir að vetrarlagi í íslenskum vetraraðstæðum.
- Meta aðstæður og gæta ítrasta öryggis.
Undanfari: Nemandi þarf að hafa lokið a.m.k. 10 einingum í kjarna leiðsögunáms.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.