VETN4AL05 - Vettvangsnám Lokaferð
Í lok skólaárs fara nemendur í hringferð um Ísland þar sem þeir skiptast á að leiðsegja og fá endurgjöf frá kennara. Nemendur undirbúa ferðina með heimildavinnu og pistlagerð úr áföngum haust- og vorannnar. Lögð er áhersla á að nemendur tengi frásagnir við það sem fyrir augu ber hverju sinni, æfi framsögn í hljóðnema, tímasetningu og framsetningu á efni. Jafnframt þjálfast nemendur í öllum helstu verkþáttum í starfi leiðsögumannsins og kynnast mismunandi aðstæðum á vettvangi.
Vettvangsnámið tengist áföngunum Tungumálanotkun 2, Svæðalýsingar 1 og Svæðalýsingar 2.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Mikilvægi góðrar skipulagningar og framkvæmd ferða um Ísland.
- Útfærslu ferða í samræmi við dagskrá eða áætlanir ferðaskipuleggjenda.
- Öryggisáætlun ferða og almennri öryggisáætlun þess fyrirtækis sem leiðsögumaður starfar fyrir hverju sinni.
- Íslenskum ferðamannastöðum, afþreyingu og þjónustu.
- Mikilvægi þess að hafa þarfir og markmið hópa í fyrirrúmi.
- Mikilvægi þess að vera fyrirmynd í umgengni og umhverfisvernd.
- Að vinna í samræmi við gæðastefnu og siðareglur ferðaskipuleggjenda hverju sinni.
- Lögum og reglugerðum um náttúruvernd.
- Mikilvægi þess að vernda náttúru og menningarminjar.
- Mikilvægi sjálfbærni í ferðaþjónustu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Segja ferðamönnum frá öllu því helsta sem fyrir augu ber í vettvangsferð um Ísland.
- Útskýra sögu lands- og þjóðar, samfélag og náttúru.
- Skipuleggja dagleið með grunnþarfir ferðamanna í huga og áætla tímasettningar rétt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Útfæra ferðir um Ísland í samræmi við dagskrá ferðaskipuleggjenda.
- Veita ferðamönnum leiðsögn og túlka fyrir gestum menningar og náttúrulegar minjar og umhverfi.
- Vera fær um að aðlaga ferðir að gestum með sérþarfir.
- Vera fær um að geta sagt frá landafræði Íslands, þar með talið myndun og mótun landsins, lífríki og vistfræði lands og sjávar.
- Segja frá sögu, menningu og atvinnulífi landsins og íslensku þjóðlífi í fortíð og nútíð.
- Gæta þess að náttúru- og menningarminjar verði ekki fyrir skemdum af völdum ferðamanna.
- Geta leitt hóp og hafa getu til að bregast við ólíkum og óvæntum aðstæðum á vettvangi, þekki aðkomu að ferðamannastöðum ekki síst m.t.t. öryggismála.
- Upplýsa ferðamenn um viðeigandi öryggisatriði og hættur og tryggja að viðeigandi búnaður sé til staðar.
- Tryggja af fremsta megni öryggi farþega sinna og geta veitt Fyrstu hjálp.
- Taka frumkvæði þegar nauðsyn ber til, taka sjálfstæðar ákvarðanir og bregðast með faglegum hætti við óvæntum aðstæðum og uppákomum.
- Beita þægilegri framsögn, sýna gott skipulag, tímastjórnun og hafa vald á hópstjórn.
- Réttar og viðeigandi upplýsingar séu veittar ferðamönnum. Vera fær um að miðla upplýsingum og koma mikilvægum staðreyndum til ferðamanna á skiljanlegan og innihaldsríkan hátt.
- Gefa jákvæða mynd af landi og þjóð og stuðla að jákvæðri upplifun - svo ferðamenn hafi bæði gagn og gaman af.
- Geta átt samskipti og tjáð sig á íslensku og/eða ensku skv. B2 skv. evrópska tungumálarammanum.
Undanfari: Kjarnaáfangar leiðsögunáms ÍSSÖ4AL02, JARÐ4AL04, LEIL4AL02, NÁTT3AL01, SVÆL4AL04, SVÆL4LA07, TMNO4AL04.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.