VETN4GÖ06 - Vettvangsnám gönguferð
Í áfanganum fá nemendur þjálfun í að ferðast af öryggi um óbyggðir Íslands og leiða gönguhópa á öruggan og upplýstan hátt. Nemendur undirbúa ferðina með heimildavinnu og pistlagerð úr áföngum haust- og vorannnar. Lögð er áhersla á að nemendur tengi við það sem fyrir augu ber hverju sinni. Jafnframt þjálfast nemendur í öllum helstu verkþáttum í starfi gönguleiðsögumannsins og kynnast mismunandi aðstæðum á vettvangi. Nemendur læra að vinna eftir fyrirframgefnum ferðaáætlunum, útfæra gönguleiðir og geta mætt óvæntum aðstæðum í ferðum og geta brugðist rétt við. Í áfanganum fara nemendur í 4-6 klukkustunda gönguferðir sem þeir skrá í leiðarbók (loggbók). Að þeim ferðum loknum undirbúa nemendur og fara í 5 daga bakpokaferð þar sem gist er í tjaldi og nemendur skiptast á að leiðsegja hópnum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Mikilvægi góðrar skipulagningar og framkvæmd ferða um ísland.
- Útfærslu ferða í samræmi við dagskrá eða áætlanir ferðaskipuleggjenda.
- Íslenskum ferðamannastöðum, afþreyingu og þjónustu.
- Mikilvægi þess að hafa þarfir og markmið hópa í fyrirrúmi.
- Mikilvægi þess að vera fyrimynd í umgengni og umhverfisvernd.
- Að vinna í samræmi við gæðastefnu og siðareglur ferðaskipuleggjenda hverju sinni.
- Lögum og reglugerðum um náttúruvernd.
- Mikilvægi þess að vernda náttúru og menningarminjar.
- Mikilvægi sjáfbærni í ferðaþjónustu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Segja ferðamönnum frá öllu því helsta sem fyrir augu ber í vettvangsferð um Ísland.
- Útskýra sögu lands- og þjóðar; samfélag og náttúru.
- Undirbúa og fara í gönguferðir sem gönguleiðsögumaður.
- Meta veðurspár og aðlaga skipulag að þeim.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Fara á eigin vegum með ferðamenn í lengri og styttri gönguferðir í óbyggðum.
- Útfæra ferðir um Ísland í samræmi við dagskrá ferðaskipuleggjenda, veita ferðamönnum leiðsögn og túlka fyrir gestum menningar og náttúrulegar minjar og umhverfi.
- Vera fær um að geta sagt frá landafræði Íslands, þar með talið myndun og mótun landsins, lífríki og vistfræði lands og sjávar.
- Segja frá sögu, menningu og atvinnulífi landsins og íslensku þjóðlífi í fortíð og nútíð.
- Gæta þess að náttúru- og menningarminjar verði ekki fyrir skemmdum af völdum ferðamanna og að ferðamenn umgangist dýr af nærgætni.
- Geta leitt hóp og hafa getu til að bregðast við ólíkum og óvæntum aðstæðum á vettvangi; þekkt aðkomu að ferðamannastöðum, ekki síst m.t.t. öryggismála.
- Upplýsa ferðamenn um viðeigandi öryggisatriði og hættur og tryggja að viðeigandi búnaður sé til staðar, og þannig ávalt tryggt af fremsta megni öryggi farþega sinna og veita fyrstu hjálp.
- Taka frumkvæði þegar nauðsyn ber til, taka sjálfstæðar ákvarðanir, og bregðast með faglegum hætti við óvæntum aðstæðum og uppákomum.
- Beita þægilegri framsögn, sýna gott skipulag, tímastjórnun og hafa vald á hópstjórn.
- Réttar og viðeigandi upplýsingar séu veittar ferðamönnum. Er fær um að miðla upplýsingum og koma mikilvægum staðreyndum til ferðamanna á skiljanlegan og innihaldsríkan hátt.
- Gefa jákvæða mynd af landi og þjóð og stuðla að jákvæðri upplifun - svo úr verði bæði gagn og gaman fyrir ferðamenn.
- Geta átt samskipti og tjáð sig á íslensku og/eða ensku skv. B2 skv. evrópska tungumálarammanum.
Undanfari: Kjarni leiðsögunáms, FYHJ3GÖ01, FERÖ4GÖ04, VEFM3GÖ01, FMJÖ3GÖ01, NÁTT4GÖ04, SVÆL4GÖ04; TMNO4GÖ02
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.