Hjúkrunarfræðingur í Menntaskólanum í Kópavogi er Íris Helgudóttir. Hún veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf með áherslu á vanda tengdum almennu heilbrigði, geðheilbrigði, kynheilbrigði og félagslegum vanda. Þjónustan er viðbót við þá stuðningsþjónustu sem nú þegar stendur til boða í skólanum, nemendum að kostnaðarlausu.
Íris er með skrifstofu á gangi nemendaþjónustunnar og er með viðtalstíma frá kl.10.00 – 15.00 á þriðjudögum.