Samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 kafla VII, um mat og eftirlit með gæðum skólastarfs, eiga framhaldsskólar að meta með kerfisbundnum hætti, árangur og gæði skólastarfs með virkri þátttöku starfsmanna, nemenda og foreldra/forráðamanna eftir því sem við á.
Mennta- og barnamálaráðuneytið gerir áætlun til þriggja ára um kannanir og úttektir sem miða að því að veita upplýsingar um framkvæmd framhaldsskólalaga, aðalnámskrár framhaldsskóla og annarra þátta skólastarfs. Ytri úttekt á framhaldsskóla skal fara fram eigi sjaldnar en á fimm ára fresti og unnin af óháðum aðilum fyrir mennta- og barnamálaráðuneyti.
Skv. 40 grein laganna eru markmið mats og eftirlits með gæðum starfs í framhaldsskólum að veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun til fræðsluyfirvalda, starfsfólks framhaldsskóla, viðtökuskóla, atvinnulífs, foreldra/forráðamanna og nemenda. Ennfremur að tryggja að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár framhaldsskóla, að auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum, tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum.
Til þess að stuðla sem best að því að markmið laga um mat og eftirlit með gæðum skólastarfs náist, hefur verið innleitt virkt innra mat á gæðum starfs í Menntaskólanum í Kópavogi.
Hlutverk gæðaeftirlits Menntaskólans í Kópavogi er í höndum Stjórnendaráðs sem mynda gæðaeftirlit ásamt gæðastjóra. Þar sem í gögnum gæðakerfisins er vísað til gæðaeftirlits þá er það bein tilvísun til stjórnendaráðs.
Stjórnendaráð fundar vikulega samkvæmt boðaðri dagskrá og eru gæðamál fastur liður í fundarboði stjórnendaráðsfunda og eru því gæðamál í sífelldri skoðun innan Menntaskólans í Kópavogi.
Á stjórnendaráðsfundum eru verkefni sem ákveðin eru á fundinum falin í ábyrgð stjórnenda sem færir það á verkefnalista sinn, því er tryggt að eftirfylgni sé með framkvæmd. Úrbætur, forvarnir og aðrir þættir gæðamála sem koma upp á fundum stjórnendaráðs undir liðnum gæðamál eru því í stöðugri umfjöllun og virk eftirfylgni með framkvæmd.
Með ofangreindum hætti tvinnar Menntaskólinn í Kópavogi daglegan rekstur og gæðamál saman í einn heildstæðan rekstur.
Menntaskólinn í Kópavogi styðst við tvö mismunandi gæðakerfi. Annars vegar GÁMES gæðakerfi fyrir hótel- og matvælasvið skólans og hinsvegar ISO 9001 gæðakerfi fyrir alla almenna starfsemi og kennslu í dagskóla. Farið hefur fram grunnfræðsla innan skólans um gæðastjórnun og gæðaeftirlit og leitast er við að tengja gæðavinnu og innra mat skólans.
Innan skólans eru notaðar tvær gæðahandbækur; annars vegar gæðahandbók ISO 9001 kerfisins sem vistuð er á rafrænu formi á innra neti skólans og hinsvegar gæðahandbók HACCP (GÁMES)-kerfisins.
HACCP er gæðakerfi sem tekur til matvælaeftirlits og hollustuhátta við framleiðslu og dreifingu matvæla. GÁMES hefur verið notað sem íslenska útfærslan á þessu kerfi en það er skammstöfun fyrir „Greining áhættuþátta og mikilvægra eftirlitsstaða". Við hótel- og matvælasvið Menntaskólans í Kópavogi hefur um árabil verið beitt aðferðafræði í samræmi við GÁMES. Á síðustu misserum hefur hugtakið GÁMES vikið fyrir notkun á enska hugtakinu HACCP sem stendur fyrir Hazard analysis and critical control points.
Menntaskólinn í Kópavogi notar rafrænt umsýslukerfi (gæðahandbók og rekstrarhandbók) ISO gæðakerfis sem tryggir betur allt utanumhald og allt staðfestingarferli á einstökum gæða- og rekstrarskjölum gæðakerfisins.
Meðal reglubundinna verkefna til viðhalds gæðakerfisins er skráning og staðfesting til þess bærra aðila á rekstrarskjölum er snúa að meginstarfsemi skólans. Helstu rekstrarskjöl eru:
Þessir þrír þættir tryggja að ákveðin vöktun fari fram á starfi kennara við MK og gefa færi til úrbóta um leið og frávika verður vart.
Um líðan nemenda er annað hvert ár lögð fyrir könnun á vegum Rannsóknar og greiningar. Þjónustukönnun er lögð fyrir nemendur um stoðsvið skólans skv. áætlun skólans þar um, könnun á starfsbraut fyrir foreldra/forráðamenn og könnun um vinnu nemenda með námi í verknámsdeildum svo nokkuð sé nefnt.
Á hverju ári gerir Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogs úttekt á hreinlæti í húsnæði Menntaskólans í Kópavogi. Það hefur iðulega verið niðurstaða þeirrar úttektar að allir hlutir væru í góðu lagi og almennt mat að skólinn væri snyrtilegur og umgengni góð.
Skólinn gefur út sjálfsmatsskýrslu eftir hvert skólaár þar sem dregnar eru saman helstu niðurstöður kannana og rýniþátta í rekstri skólans. Þessar skýrslur eru birtar hér á heimasíðu skólans.
Gæðamarkmið Menntaskólans í Kópavogi fléttast beint inn í rekstur og markmið skólans, enda er litið á gæðastjórnun sem lið í daglegum rekstri hans. Gæðatengd markmið Menntaskólans í Kópavogi, eru þessi:
Skv. lögum nr. 92/2008 um framhaldsskóla skal barna- og menntamálaráðuneytið annast öflun, greiningu og miðlun upplýsinga um skólahald í framhaldsskólum og er það liður í reglubundnu ytra mati á gæðum skólastarfs ásamt úttektum, könnunum og rannsóknum.
Í ytra mati felst að matsaðilar leggja mat á starfsemi viðkomandi skóla með hliðsjón af gildandi viðmiðum sem meðal annars byggja á lögum, reglugerðum og aðalnámskrám. Er það gert með skoðun á fyrirliggjandi gögnum um starfsemi skólans, vettvangsheimsóknum matsaðila og viðtölum við börn/nemendur, starfsfólk skóla og foreldra/forráðamenn. Síðast var gerð úttekt í Menntaskólanum í Kópavogi 2023 og skýrsluna má sjá hér á heimasíðu skólans.