Viðurkenningasjóður MK
Viðurkenningarsjóður Menntaskólans í Kópavogi stofnaður af Bæjarstjórn Kópavogs í tilefni af 20 ára afmælis skólans, 1993.
Viðmið fyrir verðlaun úr viðurkenningarsjóði MK
Tvenn verðlaun eru veitt úr sjóðnum fyrir framúrskarandi árangur við hverja brautskráningu þ.e. ein fyrir nemanda með hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi og ein fyrir nemanda með hæstu meðaleinkunn úr iðnnámi.
Skólanefnd hefur sett saman viðmið fyrir viðurkenningarsjóðinn:
· Nemandi með hæstu meðaleinkunn á bilinu 8,50-8,99 hlýtur 150.000 kr.
· Nemandi með hæstu meðaleinkunn á bilinu 9,00-9,99 hlýtur 175.000 kr.
· Nemandi með hæstu meðaleinkunnina 10 hlýtur 200.000 kr.
Auk þess veitir viðurkenningarsjóðurinn framfaraverðlaun þegar við á. Matsnefnd fer yfir tilnefningar sem berast frá starfsfólki skólans. Í matsnefnd sitja fulltrúar stjórnenda og náms- og starfsráðgjafa skólans.
· Nemandi fær 100.000 kr.
Matsnefnd leggur fram tillögur að verðlaunahöfum fyrir stjórn viðurkenningarsjóðs til samþykktar.