Skólanefnd
Menntamálaráðherra skipaði nýja skólanefnd Menntaskólans í Kópavogi 18. nóvember 2025 og gildir skipunin til fjögurra ára.
Aðalmenn án tilnefningar
Eydís Inga Valsdóttir
Jóhanna Pálsdóttir
Sverrir Óskarsson
Aðalmenn samkvæmt tilnefningu Kópavogsbæjar
Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir, formaður nefndarinnar
Varamenn án tilnefningar
Friðmey Jónsdóttir
Steindór Steindórsson
Varamenn samkvæmt tilnefningu Kópavogsbæjar
Björg Baldursdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Áheyrnarfulltrúi kennara
Íris Dögg Gunnarsdóttir
Áheyrnarfulltrúi nemenda
Hjördís Ósk Blöndal
Áheyrnarfulltrúi foreldra
Tinna Björk Pálsdóttir
Skólameistari er framkvæmdastjóri nefndarinnar.
Skólaráð
Skólaráð er kosið við upphaf hvers skólaárs. Í skólaráði sitja tveir fulltrúar kennara, tveir fulltrúar nemenda, skólameistari, aðstoðarskólameistari, áfangastjóri og framkvæmdastjóri Hótel- og matvælaskólans. Skólameistari er oddviti skólaráðs og stýrir fundum þess.
Skólaráð MK:
Ægir Friðriksson, fulltrúi kennara
Guðrún Sjöfn Axelsdóttir, fulltrúi kennara
Tveir fulltrúar nemenda
Guðríður Hrund Helgadóttir, skólameistari
Helene H. Pedersen, aðstoðarskólameistari
Haraldur J. Sæmundsson, framkvæmdastjóri Hótel- og matvælaskólans
Skólameistari boðar til funda. Skólaráð starfar á starfstíma skóla, en heimilt er að kalla það saman á öðrum tíma beri brýna nauðsyn til. Skólaráð starfar skv. lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008, 7. grein .
Hlutverk skólaráðs:
Skólaráð veitir umsögn um erindi frá skólanefnd, almennum kennarafundi, nemendaráði, einstaklingum, skólameistara og menntamálaráðuneyti sé þess óskað.
Skólaráð fjallar um mál sem varða einstaka nemendur. Með slík mál skal farið sem trúnaðarmál.
Skólaráðgetur vísað erindum sem það hefur fjallað um, ásamt umsögn, til skólanefndar, kennarafundar eða nemendaráðs.
Umhverfisnefnd
Umhverfisnefnd:
Guðmundur Kristinn Jónsson
Guðný Jónsdóttir
Guðrún Sjöfn Axelsdóttir
Elísabet H. Guðmundsdóttir
Jafnréttisnefnd
Í jafnréttisstefnu MK segir:
Innan MK skal starfa jafnréttisnefnd, sem kosin er á skólafundi til tveggja ára í senn. Í jafnréttisnefnd skuli sitja eigi færri en þrír einstaklingar kennari, starfsmaður og nemandi og gengur annar fulltrúi kennara/starfsmanna úr nefndinni í einu. Hlutverk jafnréttisnefndar er meðal annars að fylgjast með stöðu jafnréttismála í skólanum, móta stefnu og áætlanir skólans í jafnréttismálum og fylgja eftir jafnréttisáætlun skólans. Jafnréttisnefndin skal vera ráðgefandi og setja fram 3 ára aðgerðaáætlun í jafnréttismálum fyrir Menntaskólann í Kópavogi. Þegar tímaramma aðgerðaáætlunar er lokið metur jafnréttisnefndin árangur eftir fyrirframgefnum markmiðum. Hún skrifar skýrslu sem lögð er fyrir gæðaráð skólans sem tekur ákvörðun um framhald mála í samvinnu við nefndina. Samin er ný 3 ára aðgerðaáætlun. Nefndin taki saman tölur um stöðu kynja í skólanum s.s. kynjahlutfall kennara/starfsmanna - kortleggi hvernig staðan er í skólanum og birti niðurstöður í árskýrslu skólans.
Jafnréttisnefnd:
Ásrún Á Jónsdóttir jafnréttisfulltrúi MK
Ásgeir Þór Tómasson
Elfa Ingvadóttir
Guðrún Sjöfn Axelsdóttir
Öryggisnefnd
Í Menntaskólanum í Kópavogi er starfrækt öryggisnefnd skv. lögum nr. 46/1980.
Aðstoðarskólameistari er formaður nefndarinnar, framkvæmdarstjóri Hótel- og Matvælaskólans á fast sæti og tveir starfsmenn kosnir á skólafundi til tveggja ára í senn.
Umsjónarmaður fasteigna er starfsmaður nefndarinnar.
Öryggisnefnd heldur gerðarbók samkvæmt ákvæði reglugerðar nr. 920 frá 2006.
Öryggisnefnd:
Haraldur Árni Þorvarðarson deildarstjóri bakaraiðnar Haraldur J. Sæmundsson framkvæmdarstjóri Hótel- og matvælaskólans
Helene H Pedersen aðstoðarskólameistari og formaður nefndarinnar
María Ben Ólafsdóttir kennari
Þórarinn Halldórsson umsjónarmaður MK
Gæðaráð
Hlutverk gæðaráðs Menntaskólans í Kópavogi er í höndum Stjórnendaráðs sem mynda gæðaráð ásamt gæðastjóra. Þar sem í gögnum gæðakerfisins er vísað til gæðaráðs þá er það bein tilvísun til stjórnendaráðs. Stjórnendaráð fundar vikulega samkvæmt boðaðri dagskrá og eru gæðamál fastur liður í fundarboði stjórnendaráðsfunda og eru því gæðamál í sífelldri skoðun innan Menntaskólans í Kópavogi.
Á stjórnendaráðsfundum eru verkefni sem ákveðin eru á fundinum falin í ábyrgð stjórnenda sem færir það á verkefnalista sinn, því er tryggt að eftirfylgni sé með framkvæmd. Úrbætur, forvarnir og aðrir þættir gæðamála sem koma upp á fundum stjórnendaráðs undir liðnum gæðamál eru því í stöðugri umfjöllun og virk eftirfylgni með framkvæmd. Með ofangreindum hætti tvinnar Menntaskólinn í Kópavogi daglegan rekstur og gæðamál saman í einn heildstæðan rekstur.