Innritun nýnema úr grunnskóla – mikilvægar upplýsingar fyrir nýja nemendur

Innritun nýnema í Menntaskólann í Kópavogi er lokið. Metfjöldi umsókna barst eða 1.134 umsóknir um bóknám, grunndeild matvæla- og ferðagreina (GMF) og á starfsbraut. Við bjóðum 242 nýnema velkomna í bóknám, 26 nemendur á GMF og 10 nemendur á starfsbraut haustið 2025.

Við úrvinnslu umsókna var unnið eftir verklagsreglum um inntöku nýnema. Umsækjendur um nám í MK sem ekki fengu samþykkta skólavist geta sótt aftur um á vorönn 2026. Mögulega er hægt að innrita fleiri þá en ekki verður hægt að taka inn fleiri nýnema í haust. Við munum ekki bjóða upp á biðlista fyrir nemendur fæddir árið 2009.

Mikilvægar upplýsingar fyrir nýnema eru í meðfylgjandi bréfi sem við biðjum alla að kynna sér vel. Skrifstofa skólans opnar aftur eftir sumarfrí fimmtudaginn 7. ágúst og þá munum við senda út notendanöfn og lykilorð og opna fyrir skráningu á tölvunámskeið fyrir nýnema.

Bréf til nýnema