Stöðupróf í dönsku, ensku, spænsku og þýsku verður haldið í Menntaskólanum í Kópavogi þriðjudaginn 26. ágúst kl. 08:15-10:15. Hægt er að skrá sig til 22. ágúst kl. 14:00. Stöðuprófin eru fyrir nemendur sem hafa búið erlendis eða eru af erlendum uppruna og tala og rita tungumálið.
Prófgjald er 25.000 kr. sem greiða skal inn á reikning skólans um leið og skráning fer fram: 536 26 2155, kt. 631173-0399. Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram á innlegginu og afrit af kvittuninni þarf að senda á
mk@mk.is
Próftakar þurfa að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið. Nemendur mæta með eigin fartölvu í prófið og er það eingöngu fyrir nemendur MK.
Athugasemdir og fyrirspurnir eru sendar á netfangið
mk@mk.is
Skráning