Áfangaval í bóknámi fyrir haustönn 2026 hefst í dag og er opið til og með 20. mars.
Nemendur fæddir 2008-2009 velja með umsjónarkennara í kennslustund í VERA en aðrir nemendur velja sjálfir í Innu. Þeir sem þurfa aðstoð geta leitað til áfangastjóra, námsstjóra eða námsráðgjafa.
Allir nemendur í bóknámi verða að velja dagana 9.-20. mars því annars er skólavist á haustönn ekki tryggð. Val er umsókn um skólavist á næstu önn og mikilvægt að vanda vel til þess.
Mikilvægt er að velja eingöngu þá áfanga sem nemandi á að taka samkvæmt brautarkröfu eða getur hugsað sér að taka í val þar sem allt áfangaval er bindandi. Nemendur á opinni braut þurfa að huga að kippum og velja áfanga sem passa inn í þær. Nánari leiðbeiningar um áfangaval eru hér á síðu bóknáms undir áfangar.