Áfangaval í bóknámi hófst í dag og er opið til kl.15:00 föstudaginn 17. október. Nemendur fæddir 2008-2009 velja áfanga fyrir vorönn 2026 með umsjónarkennara í kennslustund í VERA en aðrir nemendur velja sjálfir í Innu. Þeir sem þurfa aðstoð geta leitað til áfangastjóra, námsstjóra eða námsráðgjafa.
Val er umsókn um skólavist á næstu önn og mikilvægt að vanda vel til þess. Allir nemendur í bóknámi verða að velja áfanga dagana 6.-17. október til að tryggja sér skólavist á vorönn 2026.
Mikilvægt er að velja eingöngu þá áfanga sem nemandi á að taka samkvæmt brautarkröfu eða getur hugsað sér að taka í val þar sem allt áfangaval er bindandi. Nemendur á opinni braut þurfa að huga að kippum og velja áfanga sem passa inn í þær.