Áfangaval í bóknámi fyrir vorönn hefst mánudaginn 5. október og er opið til kl.15:00 föstudaginn 16. október.
Nemendur fæddir 2009-2010 velja með umsjónarkennara í kennslustund í VERA en aðrir nemendur velja sjálfir í Innu. Þeir sem þurfa aðstoð geta leitað til áfangastjóra, námsstjóra eða námsráðgjafa.
Allir nemendur í bóknámi verða að velja dagana 5.-16. október því annars er skólavist á vorönn ekki tryggð. Val er umsókn um skólavist á næstu önn og mikilvægt að vanda vel til þess.
Mikilvægt er að velja eingöngu þá áfanga sem nemandi á að taka samkvæmt brautarkröfu eða getur hugsað sér að taka í val þar sem allt áfangaval er bindandi. Nemendur á opinni braut þurfa að huga að kippum og velja áfanga sem passa inn í þær.