Hótel- og veitingaskólinn í MK er 30 ára!
Af því tilefni verður blásið til afmælisfögnuðar í skólanum á laugardaginn og allir eru velkomnir!
Afmælið stendur frá kl. 11:00–16:00 og frítt er inn. Skemmtun, matur og gleði!
Dagskrá dagsins
• 11:00–16:00 Matarmarkaður
• 11:00–16:00 Fyrirtækjakynningar
• 11:00–16:00 Arctic Young Chef-keppni
• 11:30–12:00 Gúrkuskurðarkeppni
• 11:30–16:00 Matarvagnar á lóð skólans
• 12:00–13:00 Japanskt matreiðslunámskeið
• 12:30–13:00 Rófukrullingskeppni
• 14:00–14:30 Kleinuhringjakeppni
• 14:00–15:00 Japanskt matreiðslunámskeið
• 14:30–15:15 Þjónaþrautabraut