Bleikur dagur í MK

Á Bleika deginum sl. föstudag lýstu MK-ingar svo sannarlega upp skammdegið í bleikum ljóma og sýndu með því stuðning við allar konur sem greinst hafa með krabbamein.

Grunndeild matvæla- og ferðagreina útbjó bleikan hressingardrykk fyrir kennara sem einnig gæddu sér á bleiku gúmmelaði í morgunhléinu.

Nemendafélagið bauð upp á bleikt candyfloss og krap og meira að segja hafragrauturinn í mötuneytinu var bleikur!

 Bleika slaufan

Bleikir kennarar

Bleikir nemendur með sykurflos

Bleikir nemendur

Bleikur grautur

Bleikur drykkur