Brautskráning frá MK

Útskrift Menntaskólans í Kópavogi fór fram í gær, 20. desember, við hátíðlega athöfn í Digraneskirkju. Brautskráðir voru 82 nemar, 40 stúdentar, 22 iðnnemar, 16 matartæknar og 4 nemar úr meistaranámi matvælagreina. Ellefu þeirra luku einnig námi á íþróttaafrekssviði skólans.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi hlaut Inga Ewa Trzebinska en hún útskrifaðist af félags- og hugvísindabraut. Hún fékk viðurkenningu frá skólanum fyrir framúrskarandi árangur í félagsfræði, sögu og sálfræði. Þá hlaut hún einnig viðurkenningu úr Viðurkenningarsjóði MK fyrir hæstu einkunn á lokaprófi í bóknámi.
Hæstu einkunn í iðnnámi hlaut Sandra Theodórsdóttir en hún útskrifaðist úr framreiðslu og sem stúdent af opinni braut. Hún fékk viðurkenningu frá skólanum fyrir framúrskarandi árangur í bóklegri og verklegri framreiðslu. Auk þess hlaut hún viðurkenningu úr Viðurkenningarsjóði MK fyrir hæstu einkunn á lokaprófi frá Hótel og matvælaskólanum. Sandra var einnig með næsthæstu einkunn á stúdentsprófi.
Þá hlaut Eyþór Dagnýjarson viðurkenningu frá Rótarýklúbbnum Borgum fyrir góðan námsárangur í sérgreinum verknáms en hann útskrifaðist úr framreiðslu.
Guðríður Hrund Helgadóttir, skólameistari, flutti ávarp og fór yfir liðna önn. Birna Berg Bjarnadóttir, nýstúdent, söng af stakri snilld nokkur lög við athöfnina. Freyja Van de Putte flutti ávarp nýstúdents og Matthías James Spencer Heimisson flutti ávarp nýsveins. Að lokum flutti formaður skólanefndar, Guðmundur Birkir Þorkelsson, skólanum kveðju skólanefndar.
Starfsfólk Menntaskólans í Kópavogi óskar útskrifuðum nemendum skólans og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju með áfangann. Megi gæfan fylgja ykkur í lífi og starfi.