Breyttur innritunartími í iðnnámi og meistaranámi

Vakin er athygli á því að innritun í iðnnám og meistaranám bakara, framreiðslumanna, kjötiðnaðarmanna og matreiðslumanna fyrir haustönn 2020 hefst 16. mars og stendur til 20. apríl.

Nemendur sækja um rafrænt í gegnum menntagátt, miðlægt umsóknarkerfi mennta- og menningarmálaráðuneytisins og nota til þess íslykil eða rafræn skilríki. Sótt er um á vefnum www.menntagatt.is.

Nánari upplýsingar hjá áfangastjóra, Baldri Sæmundssyni í síma 594 4000

frá kl. 9:00 til 15:00, netfang: baldur.saemundsson@mk.is