Ferð í Borgarleikhúsið

Nemendur í Borgarleikhúsinu
Nemendur í Borgarleikhúsinu

Hópur nemenda í ÍSAN áfanga skólans fór fyrir stuttu í vettvangsferð í Borgarleikhúsið.

Þar fengu þau kynningu og leiðsögn um leikhúsið og fengu meðal annars að sjá smíðaverkstæði og búningaherbergi hússins.

Nemendur og kennari þakka kærlega fyrir góðar móttökur og vonandi verður þetta árlegur viðburður.