Ferilbók í vinnustaðanámi

Allir nemendur sem eru skráðir í vinnustaðanám í Hótel- og matvælaskólanum fá senda greiðslukröfu fyrir haustönn 2025 vegna ferilbókar.
Nemendur sem eru skráðir í ferilbók greiða umsjónargjald ferilbókar samkvæmt gjaldskrá skólans þær annir sem þeir eru á vinnustað.
Ný reglugerð um vinnustaðanám tók gildi 1. ágúst 2021. Frá þeim tíma sjá framhaldsskólar um gerð og staðfestingu vinnustaðanámssamninga og hafa eftirlit með þeim.

Sjá nánar í tölvupósti frá skólanum.