Streymi á forkeppni norrænu nemakeppninnar og Euroskills

Forkeppni Íslands í norrænu nemakeppninni og Euroskills í matreiðslu og framreiðslu fer fram laugardaginn 17. október 2026 í Menntaskólanum í Kópavogi (MK). 

Keppendur í matreiðslu takast á við skriflegt próf og verklega keppni þar sem reynir á fagmennsku, skipulag, tæknilega færni, hráefnisþekkingu og sköpunargleði. Nemendur elda bæði aðalrétt og eftirrétt.

Keppendur í framreiðslu hefja keppnina einnig á skriflegu prófi áður en þeir takast á við fjölbreytt verkefni þar sem reynir á fagþekkingu, nákvæmni, faglega framkomu og þjónustuhæfni. 

Sigurvegarar í matreiðslu og framreiðslu öðlast rétt til að keppa fyrir Íslands hönd í lokakeppni norrænu nemakeppninnar sem fer fram 14.-17. apríl 2027 við Verkmenntaskólann á Akureyri. 

Hér má finna slóð á beint streymi keppninnar:

https://vimeo.com/event/6279504/embed/dc05c91eaa/interaction