Gettu betur lið MK í átta liða úrslit

Egill Orri Elvarsson, Gunnheiður Guðmundsdóttir og Jason Máni Guðmundsson skipa lið MK og þjálfarar …
Egill Orri Elvarsson, Gunnheiður Guðmundsdóttir og Jason Máni Guðmundsson skipa lið MK og þjálfarar þeirra eru Magnús Már Pálsson og Jakob Fjólar Gunnsteinsson

MK er á leið í átta liða úrslit Gettu betur í sjónvarpinu.

MK vann Borgarholtsskóla 22 – 14 í spennandi keppni í 16 liða úrslitum Gettu betur. Það þýðir að MK er á leiðinni í átta liða úrslit sem fara fram í sjónvarpssal.

Búið er að draga í átta liða úrslitin og næsta keppni MK fer fram 5. febrúar við Kvennaskólann.

Egill Orri Elvarsson, Gunnheiður Guðmundsdóttir og Jason Máni Guðmundsson skipa lið MK og þjálfarar þeirra eru Magnús Már Pálsson og Jakob Fjólar Gunnsteinsson