Glæsilegur árangur Gunnars Jökuls

Gunnar Jökull Harðarson, nemandi í fyrsta bekk í bakstri, gerði sér lítið fyrir og vann keppni Landssambands Bakarameistara um brauð ársins.  Alls var 17 brauðum skilað inn. Það er næsta víst að Gunnar á eftir að láta að sér kveða í faginu þegar fram líða stundir.