Innritun eldri nemenda - biðlisti

Við höfum lokið innritun eldri nemenda sem eru fæddir 2008 eða fyrr. Eins og áður var metfjöldi umsókna í skólann og því miður var aðeins hægt að innrita í örfá pláss eldri nemenda. Við höfum opnað biðlista á heimasíðunni fyrir þá sem fengu höfnun.

Mikilvægt er að skrá sig á biðlistann ef nemandi óskar enn eftir skólavist því við vinnum aðeins úr þeim lista í ágúst en ekki öllum umsóknum sem hafnað var. Í ágúst munum við hafa samband símleiðis við þá sem fá boð um skólavist af biðlistanum.