Innritun – framlengdur innritunartími

Vakin er athygli á því að innritun í iðnnám og meistaranám bakara, framreiðslumanna, kjötiðnaðarmanna og matreiðslumanna lauk 20. apríl.  Ákveðið hefur verið að framlengja innritunina til 15. maí.

Nemendur sækja um rafrænt í gegnum menntagátt, miðlægt umsóknarkerfi mennta- og menningarmálaráðuneytisins og nota til þess íslykil eða rafræn skilríki. Sótt er um á vefnum www.menntagatt.is.

Nánari upplýsingar hjá áfangastjóra, Baldri Sæmundssyni í síma 594 4000 frá kl. 9:00 til 15:00, netfang: baldur.saemundsson@mk.is