Innritun nýnema á haustönn 2026

Innritun í Menntaskólann í Kópavogi fyrir komandi skólaár er lokið. Alls bárust 915 umsóknir og við bjóðum 262 nýnema velkomna á stúdentsbrautir, framhaldsskólabrú og í grunndeild matvæla- og ferðagreina. Samtals innritast 118 nemendur á afrekssvið skólans eða 45% nýnema.

Við val á nemendum var að öllu leyti stuðst við þá verklagsreglu sem skólinn hefur sett sér varðandi inntöku nýnema. Horft var til námsmats úr grunnskóla og var bókstöfum varpað í tölustafi samkvæmt þeim kvarða sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) hefur gefið út.

Við afgreiðslu umsókna var farið eftir einkunnum í stærðfræði, íslensku og ensku og er hæsti stigafjöldi sem hægt er að fá samkvæmt reiknireglu 20 stig eða A í þessum þremur greinum. Þeir umsækjendur sem voru með 15,25 stig eða hærra fengu allir umsókn sína samþykkta á stúdentsbrautir en því miður var aðeins hægt að veita örfáum umsækjendum með 15 stig (B í öllum þremur greinum) skólavist og þurfti að horfa til annarra sjónarmiða við röðun þeirra innan hópsins. Þá var horft til einkunna í Norðurlandamáli, samfélagsgreinum og náttúrugreinum, búsetu og hvort umsækjandi var með meðmæli frá íþróttafélagi. Nánar er hægt að lesa um innritunarviðmiðin hér.

Það verða ekki fleiri innritaðir á haustönn þrátt fyrir að einhverjir afþakki skólavist og ekki verður boðið upp á biðlista. Hægt er að sækja aftur um á vorönn 2027 þegar opnar fyrir umsóknir í haust.

Við hlökkum til að taka á móti nýjum nemendum í ágúst og verða nánari upplýsingar um greiðslu skólagjalda og upphaf haustannar sendar á nemendur í vikunni.