Íþróttir – Lokadagur til að skila inn hreyfingu er 7. desember

Við minnum á að síðasti dagur til að skila inn hreyfingu vegna íþrótta er 7. desember.

Lágmarksfjöldi skipta til að ná íþróttaáföngum er 20 og er þá miðað við heildarfjölda fyrir bæði líkamsræktarstöð og útiíþróttir. Þeir sem hafa verið að æfa undir handleiðslu þjálfara hjá sínu íþróttafélagi þurfa að skila inn staðfestingarblaði undirrituðu af þjálfara (sjá upplýsingar á heimasíðu).

Nemendur sem hafa verið að æfa í Sporthúsinu og stundað útiíþróttir hjá okkur geta nálgast upplýsingar um fjölda skipta sem þeir hafa náð á Moodle undir áfanga sem heitir Íþróttir.