Íslensku menntaverðlaunin verða veitt á Bessastöðum þriðjudaginn 10. nóvember næstkomandi. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum; fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og að auka veg menntaumbótastarfs.
Kennarar MK í Hótel- og veitingaskólanum, matreiðslumeistararnir Hermann Þór Marinósson, Hinrik Carl Ellertsson, Ragnar Wessman, Sigurður Daði Friðriksson og Ægir Friðriksson eru tilnefndir til verðlaunanna fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar með því að semja heildstætt og vandað námsefni fyrir matreiðslunám á framhaldsskólastigi. Þetta eru glæsilegar rafbækur sem hafa reynst afar vel í kennslu.
Við í MK erum stolt af þessum árangri og óskum þeim félögum innilega til hamingju!