Kjötbúð

Fyrr í vikunni opnuðu nemendur grunndeildar kjötbúðina. Þar var boðið upp á ýmsar kjötafurðir sem þau hafa verið að vinna s.s. úrbeinað lambakjöt, beikon, steikur og svo voru hinir víðfræðu MK-hamborgarar einnig til sölu. Að venju var mikil gleði á meðal nemenda og starfsfólks sem gátu gert góð kaup á úrvals hráefni.