Menntaskólinn í Kópavogi hlaut í gær viðurkenninguna Stofnun ársins í flokki stærri stofnana. Titilinn Stofnun ársins hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr á sviði mannauðsmála; starfsumgjörð, stjórnun og starfsanda, að mati starfsfólks á árinu 2025.
Að auki hlaut skólinn nafnbótina „Fyrirmyndarstofnun“ sem er viðurkenning sem veitt er ríkisstofnunum sem státa af háum einkunnum í þjónustukönnunum, lágri starfsmannaveltu, skýrum ferlum og góðri stjórnun.
Starfsmannahópurinn í MK er að afar ánægður og stoltur af þessum viðurkenningum sem munu hvetja alla til áframhaldandi góðra verka í skólanum.
Hjartað slær svo sannarlega í MK,