Miðasala á nýnemaballið miðvikudaginn 28. september

Miðasalan fyrir MK-inga er hér 

Miðasala fyrir utanskólagesti er hér

Nýnemaball verður haldið miðvikudaginn 28. september í Gamla Bíó. Húsið opnar kl. 22:00 og lokar kl. 23:00 og eftir það verður ekki hægt að komast inn á ballið.

Miðasalan hefst á mánudaginn kl. 12:30 en hún verður rafræn og tengill á hana mun birtast hér á heimasíðunni á mánudag.

Fram koma: DJ Karítas, Kalli og Arnór Orri, Daniil, Páll Óskar og Herra Hnetusmjör

Nemendur þurfa að sýna miða og skilríki við innganginn. Ekki er hægt að kaupa miða við innganginn.

Bjóði nemandi með sér gesti utan MK bera þeir ábyrgð á þeim einstaklingi og að hann hagi sér í samræmi við skólareglur MK. Ef nemandi eða gestur á hans ábyrgð brýtur skólareglur á ballinu fær nemandinn viðvörun í INNU og fær ekki að mæta á næsta skólaball.

Aðkeypt gæsla verður á staðnum ásamt starfsfólki frá MK.

Ölvun ógildir miðann sem og öll notkun nikótíns, tóbaks eða annarra fíkniefna. Hringt verður í forráðamenn ólögráða einstaklinga ef þeir eru undir áhrifum vímugjafa.

Edrúpottur verður á ballinu og geta þeir nemendur sem vilja blásið og sett nafn sitt í pottinn. Veitt verða fimm verðlaun upp á 20.000 hver. Dregið verður úr pottinum í lok vikunnar.

Forráðamenn eru hvattir til að sækja börn sín eftir ballið sem lýkur kl. 01:00.

Óskað er eftir viljugum forráðamönnum á rölt fyrir utan Gamla Bíó milli kl. 22:00 og 23:00. Þeir eru á gangi utandyra meðan nemendur eru að tínast inn og eru starfsmönnum MK til aðstoðar og fylgjast með að allt fari vel fram. Það hefur sýnt sig að foreldrarölt hefur forvarnargildi. Þeir sem sjá sér fært að mæta eru vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við Maríu, félagslífsfulltrúa, á netfangið felagslif@mk.is

Kennsla hefst kl. 9:05 næsta morgun, fimmtudag.