Ólympíuleikar ungkokka á Indlandi

Dagana 28. janúar til  2. febrúar fara fram Ólympíuleikar ungkokka í Indlandi og mun Ísland eiga keppanda þar. Alls taka 32 þjóðir hvaðanæva af í heiminum þátt í keppninni. Síðast þegar Ísland sendi keppanda, hreppti hann sjötta sætið. Til mikils er að vinna, því verðlaunafé fyrir sigur í þessari sterku keppni er 1,2 milljónir.

Keppnin fer fram í 6 borgum víðsvegar um Indland og mun Ísland keppa í Deli, Goa og Kolkata.

Keppandinn sem um ræðir heitir Anton Elí Ingason og er hann frá Akranesi. Hann var aðstoðarmaður í Bocuse D´or þegar Bjarni Siguróli keppti fyrir Íslands hönd. Einnig hefur Anton starfað á sumum af bestu veitingahúsum Íslands eins og t.d. Nostra.

Anton hefur æft stíft undanfarnar vikur í Menntaskólanum í Kópavogi. Í æfingunum skiptir tímasetning öllu segir Anton, því keppendum er úthlutaður tími í verkefnin, aðeins einn og hálfur tími á hverjum keppnisdegi. Verkefnin eru margbreytileg allt frá úrbeiningu á kjúklingi og elda aðalrétt úr honum yfir í bakstur á perueftirrétti eða grænmetisrétti úr framandi hráefni.

Aðspurður segir Anton að hann hlakki mest til að vinna með allt það framandi hráefni sem verður úthlutað, margt nýtt sem hann hefur ekki unnið með áður.

Þjálfarinn hans í keppninni er Hinrik Carl Ellertsson, sem var rekstarstjóri á Dill restaurant og starfar í dag sem kennari við Menntaskólann í Kópavogi. ,,Ég hef mikla trú á drengnum, hann hefur staðið sig vel í undirbúningi og er mikil tilhlökkun í hópnum”

Ekkert af þessu væri hægt án góðrar aðstoðar frá styrktaraðilum og þeir eru:

Matarauður Íslands

Menntaskólinn í Kópavogi

Matvís

Iðan fræðslusetur

Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur

Fastus

Bananar

 

Meira er hægt að lesa um keppnina á eftirfarandi vefsíðum

vefur: http://ycolympiad.com

Facebook:  https://www.facebook.com/ycolympiad

Twitter: @ycolympiad

Instagram : yc_olympiad

You tube : https://www.youtube.com/watch?v=_WKeBkitqLs&feature=youtu.be

 

Einnig verður hægt að fylgja keppendum eftir á Instagram reikning Matarauðs og hann er @mataraudur