Opið hús 11. mars frá 12 til 15

Opið hús í MK
Opið hús í MK

Opið hús fyrir 10. bekkinga, forráðamenn og aðra áhugasama um nám í MK.

Nemendur og starfsfólk skólans kynna fjölbreytt námsframboð og frábæra aðstöðu í MK sem og félagslíf. Sýnt verður brot úr Litlu hryllingsbúðinni sem leikfélag NMK setur upp um þessar mundir.

Nemendur í Matvælaskólanum sýna eitt og annað sem þau hafa lært og bjóða gestum að njóta.

Nemendur á Afrekssviði leika listir sínar.

Opið hús er frábær vettvangur til að kynnast náminu sem er í boði; nám til stúdentsprófs, iðnnám (bakstur, framreiðsla, kjötiðn, matreiðsla), styttri námsbrautir s.s. matartækni og matsveinanám, meistaranám í iðngreinum og leiðsögunám.

Ýmislegt góðgæti verður í boði.

Öll velkomin