Síðustu dagar vorannar 2026

Síðasti kennsludagur annarinnar er miðvikudagurinn 29. apríl. Þann dag hefst kennsla klukkan 10:15 vegna Kópamessu sem er hátíðarmorgunverður útskriftarnemenda og starfsfólks.

Fimmtudaginn 30. apríl er námsmatsdagur þar sem nemendur geta, í samráði við kennara, tekið sjúkrapróf í prófum sem þeir hafa misst af vegna veikinda á önninni og einnig geta kennarar og nemendur geta nýtt daginn til að undirbúa sig fyrir lokapróf.

Lokapróf verða haldin 4. - 8. maí og sjúkrapróf mánudaginn 11. maí. Það er mikilvægt að kynna sér prófareglurnar mjög vel en þær má finna hér á heimasíðunni. Skrifleg próf/próf á pappír eru aðgengileg í lesara (Read Speaker) á Moodle í gegnum LockDown Browser. Nemendur sem vilja nýta sér það þurfa að mæta með tölvu og heyrnartól sem tengjast við tölvuna.

Próftaflan er aðgengileg í INNU og á heimasíðunni. Þar koma fram mikilvægar upplýsingar um fyrirkomulag prófa, sjúkrapróf, forföll og annað sem við biðjum ykkur að skoða vandlega.

Sjúkrapróf

Veikindi og forföll á prófdegi þarf að tilkynna samdægurs með símtali á skrifstofuna, ekki er hægt að skrá veikindi í gegnum INNU á prófatímabili. Ekki þarf að skila læknisvottorði en skráning í sjúkrapróf kostar 2.100 kr. sem þarf að leggja inn á reikning skólans. Kennitalan er 631173-0399 og reikningsnúmer 0536-26-002155. Í skýringu þarf að koma fram fullt nafn nemandans. Tímasetningar sjúkraprófa eru þær sömu og aðalprófa á próftöflu.

Prófin

Á próftöflunni kemur einnig fram hvort um rafræn próf (tölvupróf) er að ræða. Nemendur koma með eigin tölvu í próf og þurfa þær að vera í lagi, fullhlaðnar og með LockDown Browser uppsettan. Stærðfræðipróf eru leyst á blaði en nemendur mega yfirleitt nota GeoGebra sem hjálpartæki og koma því með tölvu með sér í þau próf. Einnig þarf að koma með skriffæri og vasareikni.

Á göngum hanga uppi nafnalistar með upplýsingum um í hvaða stofum nemendur eiga að taka próf.

Öll próf eru 90 mínútur en nemendur hafa tvær klukkustundir til að leysa prófin.

Á nemendaborðum mega vera skriffæri, strokleður og þau hjálpargögn sem tilgreind eru á forsíðu prófa. Úlpur, símar (á flugstillingu), snjallúr, pennaveski, töskur og annað sem nemandi má ekki hafa hjá sér í prófi, er sett á merkt borð í prófstofu. Við mælum með að nemendur setji verðmæti í skápana sína því skólinn tekur ekki ábyrgð á eigum nemenda.

Einkunnir og námsárangur

Lokað verður fyrir einkunnir í INNU meðan á prófatíma stendur og opnað aftur eftir síðasta próf. Þeir nemendur sem falla í áfanga fara sjálfkrafa í áfangann aftur þ.e. ef hann er kenndur á næstu önn. Nemanda er einungis heimilt að sitja sama áfanga þrisvar. Þrífall getur varðað brottvikningu úr skólanum.

Prófsýning verður í skólanum fimmtudaginn 18. maí frá kl. 11:30 til 12:30. Nemendur eru hvattir til að koma í skólann og skoða sín lokapróf og verkefni. Þar gefst einnig tækifæri til að hitta umsjónarkennara, námsráðgjafa, áfangastjóra eða námsstjóra til að endurskoða val haustannar ef nemendur hafa fallið í áfanga.