Skólasetning Leiðsöguskólans

Skólasetning Leiðsöguskólans verður mánudaginn 24. ágúst kl. 17:00 í stofu N210.

Gengið er inn um aðalinngang skólans (v. Digranesveg), og upp á aðra hæð í Norðurálmu. Stundaskrá og dagatal (skipulag) haustannar verða kynnt og farið yfir fyrirkomulag náms í skólanum. Einnig mun námsráðgjafi segja frá þjónustu námsráðgjafa og gefur nýnemum góð ráð í upphafi skólagöngu.

Enn er pláss fyrir nokkra nemendur í Leiðsöguskólanum, áhugasamir geta haft samband við Kristínu Hrönn, fagstjóra skólans í síma 594 4025 eða sent tölvupóst á lsk@mk.is