Stöðupróf í dönsku, ensku og spænsku

Stöðupróf í dönsku, ensku og spænsku verða haldin í Menntaskólanum í Kópavogi þriðjudaginn 29. ágúst 2023 frá kl. 08.20-10.00 í stofu S-101.

Stöðuprófin eru fyrir nemendur sem hafa búið erlendis eða eru af erlendum uppruna og tala og rita tungumálið. Prófin eru opin fyrir alla nemendur óháð framhaldsskóla.

Skráning fer fram á netfangið mk@mk.is í síðasta lagi sunnudaginn 27. ágúst. Prófgjald er 22.000 kr. sem greiða skal inn á reikning skólans fyrir prófið: 536-26-2155, kt. 631173-0399. Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram á innlegginu og afrit af kvittuninni þarf að senda á mk@mk.is Próftakar þurfa að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.

Nemendur sem óska eftir stöðuprófi í öðrum tungumálum eru beðnir um að senda fyrirspurn á netfangið mk@mk.is.