Stöðupróf í litháísku

Stöðupróf í litháísku verður haldið í Tækniskólanum fimmtudaginn 20. maí kl. 10.30. Prófað verður á Skólavörðuholti í stofu 303. Matarhlé milli 12.00 og 12.30

Greiða þarf 12.000 kr. próftökugjald. Kennitala: skólans er 531202-3410, banki 0111-26-500552, vinsamlegast settu kennitölu í skýringu og sendu kvittun fyrir greiðslu á tskoli@tskoli.is fyrir kl. 15.00 mánudaginn 17. maí.

Hafðu kvittunina með þér í prófið ásamt persónuskilríkjum.

Nemendur geta fengið 5 – 20 einingar metnar

Nemendur utan Tækniskólans eru velkomnir