Stöðupróf í pólsku

Prófið verður í stofu N2, í aðalbyggingu skólans að Fríkirkjuvegi 9. Þeir sem vilja fara í prófið þurfa að skrá sig á heimasíðu skólans kvenno.is ekki síðar en á hádegi 7. október. Prófgjald er kr. 13000 sem greiðist með því að leggja það inn á reikning:

0513-26-14040, kt. 6502760359.

Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram á innlegginu. Vinsamlegast sendið afrit af kvittuninni á kvenno@kvenno.is. Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt og auk þess verða próftakar að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.