Stöðupróf í pólsku, dönsku og ensku

Stöðupróf í pólsku, dönsku og ensku verða haldin í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti föstudaginn 7. febrúar 2020.

Prófin byrja klukkan 14 í stofu 255 (á annarri hæð í nýbyggingu).

Skráning fer fram á þessari síðu.

Greiða þarf 15.000 kr próftökugjald fyrir mánudaginn 3. febrúar.

Kennitala skólans er: 590182-1099, banki 0537-26-50161.

Vinsamlegast setjið kennitölu nemanda í skýringu og sendið kvittun fyrir greiðslu á fb@fb.is

Mest geta nemendur fengið 20 feiningar metnar í 3. máli og tvo áfanga á 2. þrepi í ensku og dönsku.