Töflubreytingar, leiðbeiningar og stokkatafla

Búið er að opna stundatöflur nemenda og einnig fyrir rafrænar töflubreytingar. Nemendur geta fram til þriðjudagsins 22. ágúst kl. 16:00 óskað eftir töflubreytingum.

Athugið að ekki verður hægt að skipta um hópa og ef nemendur ætla að hætta við einhverja áfanga sem þeir völdu er það heldur ekki hægt. Eingöngu verður hægt að bæta við áföngum ef gat er í stundatöflu nemenda og pláss í áfanga.

Töflubreytingar verða afgreiddar eftir að lokað hefur verið fyrir töflubreytingar. Á meðan mæta nemendur í skólann samkvæmt stundatöflu á INNU.

Leiðbeiningar fyrir töflubreytingar

Stokkatafla og hvað kennt er í hverjum stokki