Töflubreytingar haustönn 2026

Búið er að opna stundatöflur nemenda í INNU og einnig fyrir rafrænar töflubreytingaóskir.

Nemendur geta fram til miðnættis sunnudaginn 23. ágúst óskað eftir töflubreytingum í gegnum INNU. Athugið að ekki er hægt að skipta um hópa. Ekki er hægt að verða við öllum óskum um töflubreytingar og því mikilvægt að mæta í kennslustundir samkvæmt stundatöflu þar til töflubreytingar hafa verið afgreiddar í INNU. Stundataflan uppfærist ef óskir hafa verið samþykktar en ef óskum er hafnað er skýring við beiðnina um töflubreytingar í INNU.

Leiðbeiningar fyrir töflubreytingar

Stokkatafla og áfangar í MK

Nemendur sem stefna á útskrift í desember geta komið og fengið aðstoð hjá námsráðgjöfum, áfangastjóra eða námsstjóra á meðan töflubreytingum stendur.

Íþróttir:
Nemendur sem ætla að vera í Sporthúsinu á haustönn þurfa að skrá sig í gegnum töflubreytingar í áfangann ÍÞRÓ1AA01 ef hann er ekki kominn í stundatöflu.

Nemendur sem eru að æfa hjá íþróttafélagi (ekki á afrekssviði) eða eiga kort í öðrum líkamsræktarstöðvum þurfa að skila áætlunarblaði með undirskrift og stimpli á skrifstofu skólans í síðasta lagi mánudaginn 1. september.

Áætlunarblað