Laugardaginn 10. október kl. 14:00–17:00 fer fram Samtal 2026, sameiginlegt samtalsverkefni sem fer fram víða um land og er opið öllum 16 ára og eldri til að hlusta hvert á annað og ræða hvernig samfélag við viljum skapa saman.
Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. Verkefnið varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem er jafnframt verndari þess.
Ungt fólk leiðir samtölin og markmiðið er að efla virk samtöl, þátttöku og samstöðu þvert á kynslóðir og ólíkan bakgrunn. Við hvetjum nemendur og forráðamenn til að kynna sér verkefnið á talasaman.is og þar er hægt að skrá sig til þátttöku.
