Það styttist í að skólastarf hefjist að nýju eftir sumarleyfi og við hlökkum til að taka á móti nemendum í næstu viku.
Stundatöflur opna í Innu mánudaginn 17. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 20. ágúst. Töflubreytingar fara fram 17.-23. ágúst.
Móttaka nýnema, fæddir árið 2010, verður mánudaginn 17. ágúst kl. 10:00 - 14.00 í Sunnusal. Nemendur hitta umsjónarkennara sína og fá kynningu á skólanum.
Umsjónarkennaraviðtöl við nýnema í bóknámi verða dagana 18 .-19. ágúst og fá nemendur tölvupóst með tímasetningu. Forráðamenn mæta með nemendum í viðtölin.
Tölvunámskeið nýnema í bóknámi verða dagana 18.-19. ágúst. Hver nemandi skráir sig á eitt námskeið sem tekur klukkustund. Þar munum við kenna á námsumhverfið sem notað er í skólanum (Moodle og Innu). Við biðjum nemendur að mæta með sína fartölvu á námskeiðið og er alveg sama hvort það er Mac eða PC tölva. Nauðsynlegt er að vera með rafræn skilríki. Athugið að nemendur á sérnámsbraut skrá sig ekki á þetta tölvunámskeið. Hámarksfjöldi er 45 nemendur í hverjum hóp og er skráning hér.
Móttaka eldri nýnema í MK er miðvikudaginn 19. ágúst frá kl. 14:00-15:30 í Sunnusal og verða nánari upplýsingar sendar í tölvupósti.
Stöðupróf í dönsku, ensku, spænsku og þýsku verða haldin fyrir nemendur MK þriðjudaginn 25. ágúst kl. 08:30 - 10:30. Stöðuprófin eru eingöngu fyrir nemendur sem hafa búið erlendis eða eru af erlendum uppruna og tala og rita tungumálið. Skráning og nánari upplýsingar eru hér.
Í upphafi annar er gott að skoða helstu dagsetningar vetrarins og er skóladagatalið aðgengilegt hér. Einnig hvetjum við ykkur til að fylgjast með fréttum af skólastarfinu á Facebook og Instagram.
Allar fyrirspurnir má senda á skrifstofu skólans, mk@mk.is.