Útskrift úr Leiðsöguskólanum júní 2020

Hópur útskriftarnema ásamt fagstjóra leiðsöguskólans
Hópur útskriftarnema ásamt fagstjóra leiðsöguskólans

Þann 10. júní voru 30 leiðsögumenn útskrifaðir frá Leiðsöguskólanum. Tuttugu útskrifuðust sem leiðsögumenn ferðafólks og tíu gönguleiðsögumenn. Vegna samkomubanns þurfti að fresta mörgum æfingaferðum vorannar. Undanfarnar vikur hafa verið ansi annasamar hjá nemendum en eftir að reglur um samkomubann voru rýmkaðar hafa þeir verið á ferðinni allar helgar!

Tveir nemendur fengu viðurkenningu fyrir frábæran námsárangur, Harpa Hafsteinsdóttir í Almennri leiðsögn og Sigurður Arnar Einarsson í Gönguleiðsögn.

Til hamingju með áfangann nýútskrifuðu leiðsögumenn, megi ykkur farnast sem best í leik og starfi í framtíðinni!

Þrjár persónur á mynd, tveir eru verðlaunahafar og einn er fagstjóri

Á myndinni eru verðlaunahafar, Harpa Hafsteinsdóttir og Sigurður Arnar Einarsson,  ásamt fagstjóra Leiðsöguskólans, Kristínu Hrönn Þráinsdóttir.