Fimmtudaginn 15. maí milli klukkan 11:30 og 12:30 geta nemendur komið og skoðað prófin sín eða niðurstöður úr námsþáttum þeirra áfanga sem þeir voru í á vorönninni.
Hafi nemandi fallið í einhverjum áfanga er mikilvægt að hann komi í skólann og hitti umsjónarkennara sinn (þ.e. nemendur fæddir 2008 og 2007) og fari yfir námsferilinn sinn. Nemendur fæddir 2006 og eldri geta hitt námsráðgjafa til að líta á ferilinn. Athugið að ef nemandi fellur í einum eða fleiri áföngum getur það orðið til þess námstími lengist.