Viðskipta- og hagfræðibraut - Nemendur fæddir 2005 og síðar

Prentvæn útgáfa

Á viðskipta- og hagfræðabraut er áhersla lögð á að byggja upp sterkan þekkingargrunn á sviði viðskipta- og hagfræðigreina þar sem nemendur öðlast innsýn í fræðilegar starfsaðferðir.

Með bundnu vali geta nemendur aðlagað námið að þörfum sínum og áhugasviðum. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og þar með býr nemandinn yfir þekkingu, leikni og hæfni til að takast á við nám á háskólastigi. Brautin er góður undirbúningur fyrir frekara nám s.s. í viðskiptagreinum, hagfræði og lögfræði. Þá veitir námið góða innsýn í íslenskt viðskiptaumhverfi.

Inntökuskilyrði

sjá hér

Námstími

Námstími til stúdentsprófs er þrjú ár og þarf nemandi að ljúka 33-34 einingum á önn til að ljúka á þeim tíma.

Brautin skiptist í kjarna 162 einingar, 25 einingar bundið val og 15 einingar frjálst val, samtals 202 einingar.

162 einingar - Kjarni

Heiti fags, (einingar) skammstöfun fags og skammstöfun áfanga með tengli í áfangalýsingu

25 einingar - Bundið val

Nemandi velur 10 einingar eða tvo áfanga*

    • Enska  ENSK  3CB05
    • Stærðfræði STÆR 3CA05 (Ályktunartölfræði og líkindareikningur), 3CD053CE05

Nemandi velur 15 einingar eða þrjá áfanga*

    • Bókfærsla  BÓKF  3CA05
    • Fjármál  FJÁF  3CA05
    • Frumkvöðlafræði  FRUM  3CA05
    • Markaðsfræði  MARK  3CA05
    • Rekstrarfræði  REKS  3CA05
    • Tölvubókhald  TÖBÓ 2BAO5 
    • Þjóðhagfræði  ÞJÓР 3CA05

*Nemendur velja áfanga í bundið val, miðað við aðgangsviðmið háskóla

15 einingar - Frjálst val

Frjálst val 15 einingar þar sem nemandi getur haldið áfram að dýpka þekkingu sína og velja fleiri áfanga af sérsviði viðskipta- og hagfræðabrautar eða valið aðra áfanga sem skólinn býður upp á.

Hafa þarf í huga við allt val að einingar á fyrsta þrepi geta verið 66 að hámarki, annars þreps einingar geta verið 100 að hámarki og það þurfa að vera að lágmarki 34 einingar á þriðja þrepi.

Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs er 202 einingar, en nemandi má útskrifast með fleiri einingar.

Danska, enska, íslenska, stærðfræði á fyrsta þrepi teljast ekki með til stúdentsprófs þ.e. í 202 eininga pakkanum.

Lokamarkmið viðskipta- og hagfræðabrautar

Að loknu námi á viðskipta- og hagfræðabraut skal nemandi hafa hæfni til að 

  • afla sér upplýsinga, meta þær, vinna úr þeim og túlka þær
  • sýna frumkvæði og skapandi hugsun við lausnamiðað nám
  • efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína
  • leita fullnægjandi raka fyrir skoðunum sínum og annarra
  • gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni
  • taka þátt í lýðræðislegri samræðu og samstarfi
  • nálgast viðfangsefni sín og umhverfi á víðsýnan, umburðarlyndan og ábyrgan hátt
  • fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
  • nýta sér góða almenna þekkingu á sviði viðskipta- og hagfræðigreina
  • beita aðferðum þeirra greina sem hann sérhæfir sig í og velja viðeigandi rannsóknaraðferð hverju sinni
  • takast á við frekara nám, einkum í viðskiptagreinum, hagfræði og lögfræði
Síðast uppfært 08. mars 2024