Erlend samskipti

Erlent samstarf Hótel- og matvælaskólans

Nemendur í Hótel- og matvælaskólanum í MK taka þátt í margskonar verkefnum erlendis. Skólinn er með samninga við skóla í Finnlandi, Frakklandi, Brussel og víðar og gefst nemendum og kennurum tækifæri á að heimsækja skóla og vinnustaði. Heimsóknir nemenda standa yfir að lágmarki í þrjár vikur og er um samstarfsverkefni skólans, námsstaðar nemandans og viðtökuskóla erlendis að ræða. Hefur þetta mælst vel fyrir og hafa nemendur bæði gagn og gaman af þessum heimsóknum.

Norræna nemakeppnin

Nemendur í framreiðslu og matreiðslu hafa keppt í norrænni nemakeppni framreiðslu- og matreiðslunema frá árinu 1987. Er keppt einu sinni á ári í einhverju Norðurlandanna.  Eftir forkeppni sem haldin er í Hótel- og matvælaskólanum eru valdir tveir nemendur úr hvorri grein sem keppa síðan fyrir hönd Íslands. Iðan fræðslusetur heldur utan um keppnina fyrir fagfélög og atvinnulíf. Nemendum í þessum greinum hefur gengið vel undanfarin ár og mjög oft lent á verðlaunapalli. Keppnin verður haldin hér á landi vorið 2021,

Síðast uppfært 27. mars 2020